Þjónusta við sprotafyrirtæki

Stuðningur við hátækni frumkvöðla með aðgangi að sérfræðingum og tæknilegum innviðum

Á Tæknisetri er stuðningur við hátækni frumkvöðla veittur með aðgangi að sérfræðingum og tæknilegum innviðum. Við hjálpum sprotafyrirtækjum að þróa hugmyndir sínar frá upphafi til markaðar.

Aðstaða

Tilraunaaðstaða, verkstæði, frumgerðarsmíði, grófrými og framleiðslurými.

Tækjabúnaður

Sérhæfð rannsóknartæki og búnaður til mælinga og framleiðslu.

Þekking og ráðgjöf

Aðgangur að sérfræðingum á sviði verkfræði og náttúruvísinda.

Sprotasamfélag

Skrifstofur, fundarherbergi og fundasalir, samfélag yfir 30 tæknisprota.