Aðstaða
Húsnæði, verkstæði og tæknileg aðstaða á Tæknisetri
Húsnæði
Tæknisetur er staðsett í þremur byggingum, Árleyni 2, Árleyni 8 og 8a. Samtals eru þetta 6300 fermetrar af húsnæði fyrir skrifstofur, rannsóknir, framleiðslu, mötuneyti og allt það sem frumkvöðlar þurfa.
Skrifstofur
Tæknisetur leigir út skrifstofurými til frumkvöðla, fyrirtækja og einstaklinga sem vinna að nýsköpun. Núna eru skrifstofurými fyrir um 200 manns en í boði eru bæði stór og smá skrifstofurými.
Verkstæði
Tæknisetur rekur verkstæði fyrir allra helstu frumgerðasmíði en verkstæðið er útbúið öllum helstu tólum og tækjum eins og fræsivél, rennibekk, suðuvélum og þrívíddarprenturum. Frumkvöðlar geta fengið aðgang að verkstæðinu.
Verkefnaaðstaða
Frumkvöðlar geta fengið sérstaka verkefnaaðstöðu þar sem hægt er að vinna með eigin tól, tæki og framleiðslubúnað eins og t.d. þrívíddarprentara.
Fundarherbergi og salir
Á Tæknisetri eru fjölmörg fundarherbergi fyrir frumkvöðla og fyrirtæki. Einnig eru 2 stærri salir sem hægt er að leiga fyrir viðburði.

