Þrívíddarprentun
Þrívíddarprentun fyrir frumgerðir, hönnun og framleiðslu
Tæknisetur starfrækir fjölbreytta þrívíddarprentunarþjónustu en við rekum eina laser-málmþrívíddarprentara landsins (e. metal powder bed fusion – 160x160x200 mm). Þar að auki búum við yfir bæði stórum (1000x500x500 mm) og smáum (254x254x254 mm) plastþrívíddarprenturum sem prentað geta úr ýmsum efnum ásamt því að reka tæki til þess að búa til sérhæfð prentefni í plastprenta.
Við hjálpum þér að breyta hugmyndum í raunveruleika með nákvæmum frumgerðum og smáframleiðslu. Hvort sem þú ert með tilbúið þrívíddarmódel eða ekki eru sérfræðingar Tækniseturs tilbúnir að hjálpa þér með þitt verkefni. Hafðu samband!
Málmprentun
Þrívíddarprentun úr málmdufi. Ryðfrítt stál, álmelmi o.fl.
Plastprentun
Hefðbundin þrívíddarprentun með venjulegum og stórskala prenturum.
Sérhæfð efni
Við búum yfir tækjabúnaði sem getur framleitt prentþráð, sérhæfðan eða endurunninn.
Hönnunaraðstoð
Ráðgjöf við hönnun og undirbúning 3D-módela, bæði fyrir prentun og í hefðbundna framleiðslu.

