Fréttir5. maí 2022
Rauan Meirbekova gengur til liðs við Tæknisetur

Rauan er doktor í rafefnafræði með sjö ára reynslu af þróun málmvinnsluferla. Hún hefur starfað bæði hjá alþjóðlegum fyrirtækjum á borð við Elkem og PCC, sem og hjá sprotafyrirtækjum eins og DTE. Nú er hún verðmætur liðsmaður í rannsóknar- og þróunarteymi Tækniseturs.


